18. Strandagangan verður haldin 10. mars 2012
Heimsóknir
Í dag:  177  Alls: 48324
17.03.2011 20:12:56 / Ragnar

Strandagangan 2012

Sjáumst í 18. Strandagöngunni 10. mars 2012

» 8 hafa sagt sína skoðun

14.03.2011 22:49:17 / Ragnar

Leiðrétt úrslit úr sveitakeppninni

Búið er að gera leiðréttingu á úrslitunum úr sveitakeppninni, en þar gleymdist hin frábæra sveit 3X sem náði 5. sæti í 20 km.  Beðist er velvirðingar á mistökunum.

» 9 hafa sagt sína skoðun

13.03.2011 20:57:02 / Ragnar

Leiðrétt úrslit

Búið er að gera eina breytingu á úrslitunum í 20 km flokki karla 35-49 ára.

» 16 hafa sagt sína skoðun

13.03.2011 20:35:58 / Ragnar

Úrslitin úr sveitakeppninni

Úrslitin úr sveitakeppninni eru komin á síðuna, en sigurvegarar í henni voru: Skíðakapparnir, snjókornin, Gæfa og Team Fjallabyggð.

» 12 hafa sagt sína skoðun

13.03.2011 13:52:47 / Ragnar

Myndir af Strandagöngunni

Það eru flottar myndir af Strandagöngunni hjá Munda Páls og Jóni Halldórs.  Bestu þakkir fyrir góðar myndir Mundi og Jón.

» 6 hafa sagt sína skoðun

12.03.2011 22:14:00 / Ragnar

Úrslitin komin á síðuna

Þá eru úrslitin úr 17. Strandagöngunni komin á síðuna, en gangan var haldin í Selárdal í dag í ágætu veðri: sólskin með köflum, logn og frost -10°c undir lok göngunnar snjóaði dálítið.  Alls tóku 82 þátt í göngunni og komu víða af landinu, Húsavík, Akureyri, Ólafsfirði, Siglufirði, Súðavík, Ísafirði og höfuðborgarsvæðinu.  Keppendum er hér með þökkuð þátttakan í göngunni.  Allir þeir sem komu að framkvæmd göngunnar fá kærar þakkir fyrir, og má segja að allt hafi gengið eins og í sögu við framkvæmd göngunnar.  Kaupfélag Steingrímsfjarðar fær þakkir fyrir stuðninginn við gönguna, en Kaupfélagið hefur verið styrktaraðili göngunnar frá upphafi.

Sigurbjörn Þorgeirsson frá Ólafsfirði kom fyrstur í mark í 20 km göngunni og fékk því hinn stórglæsilega Sigfúsarbikar til varðveislu næsta árið.  Sigurbjörn vann öruggan sigur í göngunni, en hann tók forustuna strax í upphafi og hélt henni alla leið.  Næstur í mark var annar Ólafsfirðingur Kristján Hauksson rúmlega mínútu á eftir Sigurbirni.

Úrslitin úr sveitakeppninni verða sett inn á síðuna á morgun  

» 13 hafa sagt sína skoðun

12.03.2011 20:26:22 / Ragnar

Strandagöngunni lokið

Strandagangan var haldin í dag í fínu veðri í Selárdal, en örlítið snjóaði þó í restina á göngunni.  Alls voru 82 þátttakendur í göngunni sem telst mjög góð þátttaka.  Úrslitin verða komin á netið seinna í kvöld.

» 8 hafa sagt sína skoðun

11.03.2011 11:32:06 / Ragnar

Strandagangan á morgun

Strandagangan verður haldin á morgun laugardaginn 12. mars í Selárdal.  Allt er að verða klárt fyrir gönguna, kominn er nægur snjór og spáin gerir ráð fyrir frábæru veðri.

Genginn verður 5 km hringur svipaða leið og gengið var í fyrra, nema við bætist ein brekka upp nýjan sneiðing sem gerður var í haust til að tengja Múlaengið betur við svæðið í kringum Syrpu.

Minnt er á að hægt er að sækja númer, skrá sig og greiða þátttökugjald í kvöld milli kl. 18 og 22 í Víkurtúni 10 á Hólmavík hjá Rósmundi formanni Skíðafélagsins.  Einnig er hægt að greiða þátttökugjaldið með því að leggja inn á reikning Skíðafélagsins í Sparisjóði Strandamanna:  1161-05-400178 kt. 510100-2120 og senda kvittun á igrak@simnet.is">sigrak@simnet.is 

Það verður opið í heitu pottana í íþróttamiðstöðinni á Hólmavík kl. 14-17 á morgun og gert ráð fyrir að kaffihlaðborð og verðlaunaafhending hefjist ekki fyrr en eftir að allir hafa fengið tíma til að fara í pottana.

Þeir sem ekki hafa komið í Selárdal áður og eru ekki öruggir að rata þangað ættu að kynna sér hvar Selárdalur er á landakortinu áður en lagt er af stað.  Selárdalur er ca 16 km norðan við Hólmavík við Drangsnesveg.  Selárdalur liggur í norður frá botni Steingrímsfjarðar við hlið Staðardals sem er dalurinn sem ekið er upp á Steingrímsfjarðarheiði.  Sett verða upp skilti við vegamót Drangsnesvegar sem vísa leiðina í Selárdal, en þegar beygt hefur verið við vegamót Drangsnesvegar er ekið í ca. 3 km og beygt til vinstri upp afleggjarann að Geirmundarstöðum í Selárdal. 

» 4 hafa sagt sína skoðun

10.03.2011 11:36:26 / Ragnar

Góð spá fyrir laugardaginn

Töluvert er komið af skráningum í Strandagönguna og eins og oft áður eru vinir okkar á Ísafirði þar fjölmennastir.  Við minnum fólk á að skrá sig einnig í sveitakeppnina sem er í öllum vegalengdum.

Veðurspáin fyrir laugardaginn er góð en spáð er sólskini fyrri part dags, hægum vindi eða 2 m/s af suðaustri = logn í Selárdal og frost -6°c eftir hádegi.

Mikið hefur bæst við af snjó í Selárdal og verður líklega eingöngu nýr snjór í brautinni.

Ráðleggingar í sambandi við smurningu miðað við spána eru þessar:  fjólublár rennslisáburður, blár extra í festuáburð.

Rétt er að benda fólki á að snjómokstursreglur vegagerðarinnar hafa breyst þannig að Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldar og vegurinn um Strandir eru mokaðar er á föstudögum og sunnudögum en ekki á laugardögum eins og verið hefur undanfarin ár.  Líklegt er þó að leiðirnar haldist opnar ef spáin gengur eftir og lægir seinnipart föstudags.  Einnig eru fjölmargir gistimöguleikar hér á Ströndum.

» 7 hafa sagt sína skoðun

09.03.2011 10:44:09 / Ragnar

Strandagangan 2011

Strandagangan verður haldin í Selárdal laugardaginn 12. mars 2011

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

Stelpur 1 km                                         Strákar 1 km              
Konur 5 km                                          Karlar 5 km
Konur 10 km                                        Karlar 10 km
Konur 16-34 ára 20 km                       Karlar 16-34 ára 20 km
Konur 35-49 ára 20 km                       Karlar 35-49 ára 20 km
Konur 50 ára og e. 20 km                    Karlar 50 ára og e. 20 km

Ræst verður í 1 km gönguna kl. 12.20 og í aðrar vegalengdir kl. 13.00.    1 km gangan er eingöngu ætluð keppendum 12 ára og yngri.

Þrír fyrstu keppendur í hverjum flokki og vegalengd fá glæsilega bikara og aðrir fá viðurkenningarpening fyrir þátttökuna.  Kaupfélag Steingrímsfjarðar Hólmavík styrkir gönguna með kaupum á  verðlaunagripum.  Sá sem er fyrstur í mark í 20 km. göngunni hlýtur að launum veglegan farandbikar sem gefinn var af Heilbrigðisstofnun Hólmvíkur til minningar um Sigfús Ólafsson heimilislækni.  Einnig verður keppt í sveitakeppni í öllum vegalengdum.  Sveitakeppnin fer þannig fram að 3 einstaklingar í sömu vegalengd mynda lið og gildir samanlagður tími þeirra í sveitakeppninni.  Þrjár efstu sveitirnar í hverri vegalengd fá verðlaunapeninga fyrir sæti. 

Skráning fer fram á staðnum milli kl. 11.30-12.20, en til að auðvelda vinnu við skráningu geta menn sent skráningar og fyrirspurnir á netfangið igrak@simnet.is">sigrak@simnet.is, eða í síma: 8933592 (Ragnar) eða 8921048 (Rósmundur).  Þátttökugjald er kr. 2.500 fyrir 16 ára og eldri og kr. 1.000 fyrir 15 ára og yngri. 

Eftir göngu er öllum keppendum og starfsfólki boðið í veglegt kaffihlaðborð og verðlaunaafhendingu í Félagsheimilinu á Hólmavík.  Aðgangseyrir að kaffihlaðborði fyrir aðra en keppendur og starfsmenn er 1.000 kr sem rennur til styrktar starfsemi Skíðafélagsins.      

 Skíðafélag Strandamanna


» 10 hafa sagt sína skoðun

08.03.2011 13:13:31 / Ragnar

Troðin braut í Selárdal í dag

Í dag verður lagt spor í Selárdal líklega 5 km hringurinn sem genginn verður í Strandagöngunni á laugardaginn.  Í gær var sami hringur einnig troðinn.  Brautin ætti að vera tilbúin kl. hálf þrjú en þá byrjar æfingin hjá okkur.  Í Selárdal eru nú frábærar aðstæður logn, sól og frost  -7°c og nægur snjór.

» 10 hafa sagt sína skoðun

07.03.2011 13:37:40 / Ragnar

Snjóar í Selárdal

17. Strandagangan verður haldin í Selárdal nk. laugardag, nokkuð hefur bæst þar við af snjó undanfarinn sólarhring eða ca 10-20 cm jafnfallið ofan á gamlan harðan snjó sem var aðeins farinn að láta á sjá eftir umhleypingatíð undanfarnar vikur.  Samkvæmt spánni fyrir næstu daga eru líkur á að meira bæti á snjóinn og stefnir því í fínar aðstæður á laugardaginn.

» 11 hafa sagt sína skoðun

03.03.2011 11:21:02 / Ragnar

Skráning er hafin í Strandagönguna

Skráning er hafin í Strandagönguna 2011.  Vinsamlegast sendið skráningar á netfangið igrak@simnet.is">sigrak@simnet.is eða sími 8933592 (Ragnar).  Með skráningunni þurfa að koma fram eftirfarandi upplýsingar:  Nafn keppanda, fæðingarár, félag eða hérað sem keppt er fyrir, vegalengd og netfang eða sími.  Skráning er einnig hafin í sveitakeppnina.

» 7 hafa sagt sína skoðun

24.03.2010 21:40:34 / Ragnar

Strandagangan 2011

Sjáumst í 17. Strandagöngunni 12. mars 2011

» 7 hafa sagt sína skoðun

16.03.2010 19:11:23 / Ragnar

Týnda blaðið er fundið

Þá er týnda úrslitablaðið komið í leitirnar og er búið að leiðrétta tíma nokkurra keppenda í samræmi við það en röð keppenda breyttist ekkert.

Það er rétt að vekja athygli fólks á snilldarpistli Heimis Hanssonar á bloggsíðu vasa 2000 undir fyrirsögninni Strandakökunni 2010 lokið

» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5